Brúðkaupssýning Cocktail veisluþjónustu
í Lionssalnum Lundi 18. október 2009

Tæplega 300 manns, verðandi brúðhjón og aðrir áhugasamir, fjölmenntu á glæsilega brúðkaupssýningu sem Cocktail veisluþjónusta stóð fyrir í Lionssalnum Lundi í Auðbrekku í Kópavogi sunnudaginn 18. október sl. Á sýningunni var margt að sjá og bragða á sem tengist brúðkaupinu. Árni Þorsteinsson framreiðslumeistari Cocktail veisluþjónustu var ánægður hversu vel tókst til enda voru gestir ánægðir með sýninguna.

Sýningin var í senn fróðleg, fjölbreytt og skemmtileg. Það fyrsta sem gestir sáu var vel skreyttur inngangurinn og á leiðinni upp tröppurnar hljómaði yndislegur söngur og undirleikur en Margrét Helga Kristjánsdóttir, píanóleikari og söngkona var ein af mörgum að kynna sig á sýningunni. Við blasti síðan uppstilltur og skreyttur veislusalur og skemmtilegt "gjafaborð" með ýmsum munum frá KitchenAid og nokkur málverk. Þá bauð Cocktail veisluþjónusta upp á smakk ýmissa forrétta og heita rósakálssúpu, Bakaríið Kornið var með 2 fallegar brúðartertur, RJC var með kynningu og smökkun á 6 bragðgóðum og ódýrum léttvínum og Tvö hjörtu, brúðarkjólaleiga og verslun, stillti upp gínum og bæklingum. Hver bás hafði svo sinn starfsmann til að spjalla við sýningargesti og veita viðeigandi ráðgjöf. Þá stóðu Sesselja Tómasdóttir og Freyja Önundardóttir fyrir myndlistarsýningu í veislusalnum.

Cocktail veisluþjónusta hefur lengi sérhæft sig í heildarsamsetningu og góðri brúðkaupsráðgjöf fyrir verðandi brúðhjón.

Leitið tilboða í brúðkaupsveislu

Upplýsingar um brúðkaupsveislu
• Cocktail veisluþjónusta •
sími: 899-8994
brudkaupsveislur@brudkaupsveislur.is

Pantanir og fyrirspurnir um lausar dagsetningar, matseðla og verð eru aðeins veittar í tölvupósti, nánari upplýsingar eru veittar í síma

Til baka

Samstarfsaðilar

Margrét Helga Kristjánsdóttir söngkona og píanóleikari

© Cocktail veisluþjónusta
sími: 899-8994

© 2009, Cocktail veisluþjónusta
Fyrirspurn - cocktail@cocktail.is